Enn einn snjóhvítur vetur í Ölduselsskóla

 Ég í  6. bekk er að læra íslensku og ég hef verið að læra stafsetningu og lestur. Skrifað í ferilritun og leysa verkefni í Mál í Mótun og Málrækt.

 Í ferilritun hef ég verið að skrifa sögur, ljóð, skrýtlur og söngva. Gefið það svo út á þvottasnúruna þar sem hver sem er getur lesið það/hana.

 Mál í Mótun og Málrækt eru verkefna bækur þar sem ég læri stafsetningu og málfræði t.d.  fallbeygingu, stigbreytingu, kyn, eintölu og fleirtölu. Mér fannst þær ekki skemmtilegar. Þær voru langdregnar og leiðinlega langar.

 Ég las auðvitað yfir skólaárið á hverjum einasta degi og það borgaði sig að auki. Mér finnst það líka skemmtilegt og yndislestrartímarnir voru næstum einu tímarnir sem maður fær frið fyrir hávaða og látum.

 Þórunn, umsjónarkennarinn minn, kenndi mér mest alla íslensku en Berglind, umsjónarkennari í 6. bekk, kenndi okkur ljóð og reglur við skáldun.

Í ensku hef ég loksins verið í málfræði og loks getur maður skrifað rétt á ensku þegar maður þarf á því að halda. Ég hef gert málræktina í köflum frá eitt til átta. Ég gerði svo ritgerðir um uppáhalds mat og uppáhalds dýr á ensku en það átti að gera um besta vin í staðinn fyrir uppáhalds mat. Ég valdi pitsu og ljón. Svo tók ég munnlegt próf um ritgerðirnar sem ég gerði.

Berglind, sem er umsjónarkennari í 6. bekk, kenndi okkur ensku yfir veturinn.

Eins og alltaf lærum við eitthvað nýtt í stærðfræði t.d. um vegalengd, að samnefna og mörg smáatriði í viðbót. Við vorum í Stiku 2A, sem er vinnubók í stærðfræði, yfir veturinn og einstaka sinnum fáum við heimanám heim í stærðfræði.

 Ég lærði oftast stærðfræði hjá Helgu, sem er stærðfræðikennari á miðstigi, en stundum lærði ég hjá Þórunni, umsjónarkennara mínum.

Ég gerði bloggsíðu inná blog.is í byrjun vetrar og á hana átti ég að blogga um verkefni og hluti sem ég geri í skólanum og þú ert að lesa eitt af þeim einmitt núna. Þetta kom í staðinn fyrir að þurfa að skrifa það allt með handskrift.

Egla er frásögn eftir Snorra Sturluson um mann sem heitir Egill Skalla-Grímsson. Hann var mikill víkingur á miðöld og nógu klikkaður til þess að drepa sjö ára strák aðeins fimm ára. Ég lærði um hann  og hans sögu á fyrstu önn og gerði bók með spurningum sem ég svaraði eftir hvern kafla.

 Þórunn, umsjónarkennarinn minn, kenndi mér Eglu.

 Snorri Sturluson var ábyggilega sá klárasti goði á Íslandi á sínum tíma. Hann skrifaði þrjár frægar bækur sem heita Heimskringla, Egils Saga eða Egla og Snorra Edda. Saga hans er áhugaverð sem gerist á bæði  Noregi og Íslandi.

 Ég lærði um Snorra Sturluson hjá Elín Ingu, umsjónarkennara í 6. bekk.

 Margir spyrja sig að því hvernig heimurinn virkar. Af hverju vatn rennur og hvernig lögun heimsins er. Nú eru til eðlisfræðingar, jarðfræðingar og náttúrufræðingar sem koma með lausnir fyrir allar þessar spurningar.

 Ég hef verið að læra nokkur grunnvallar atriði í eðlisfræði og gerum nokkrar tilraunir og mér finnst það skemmtilegt og fræðandi og ég er viss um að öllum hafi fundist það sama og mér.

Þórunn, umsjónarkennarinn minn, kenndi mér eðlisfræði.

Ég lærði um Norðurlöndin í vetur og það var meira fræðandi en ég hélt það myndi verða. Ég lærði um mismunandi menningar og hefðir. Hvað fólk gerir yfir daginn, hvað það étur og um stjórnarfar landanna.

 Þórunn, umsjónarkennari minn, Bryngeir og Adda, kennaranemar, kenndu mér landafræði.

 Þessi vetur var sérstakur. Maður lærði mikið yfir veturinn og maður gat skemmt sér í leiðinni. Það voru skemmtilegir og fjörugir kennarar að kenna okkur og mér fannst þessi vetur skemmtilegur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband